Útskriftarferðir geta verið mjög mismunandi við hjá Ferd.is bjóðum uppá fjöldan allan af ferðum sem hægt er að kynna sér undir bæklingar á síðunni okkar. þar eru verð á hótelum, skoðunarferðum og ýmsu fleiru sem starfsfólk okkar á norðurlöndum hefur valið. Hægt er á auðveldan hátt að gera sér grein fyrir hvað ferðin kostar með því að kynna sér bæklingana og síðan nota flugbókunarvél okkar til að kanna hvaða flugverð hægt er að fá til allra heimshorna.
Útskriftarferð til
Thailands
 
FRAMANDI NORÐURTHAILAND & KOH SAMUI’S PÚÐURSANDUR . 15 DAGAR / 14 NÆTUR
 
FERÐ 105:
2 dagar Bangkok - 3 dagar Mae Hong Son - 3 dagar Chiang Mai-7 dagar Koh Samui
Bæklingur á Íslensku hér eða ýtið á myndirnar til að ná í tilboðið
Útskriftarferð
Sól & Sandur
KONUNGLEGI SUMARLEIFIS STAÐURINN Í THAILANDI ER HUA HIN
14 DAGAR / 11 NÆTUR
 
Bæklingur á Íslensku hér eða ýtið á myndirnar til að ná í tilboðið
Athugið að þetta eru bara dæmi um dagsetningar hægt að færa þær
til svo þær henti ykkar ferð.

Til umhugsunar

 

Vegna umræðu í þjófélaginu núna síðustu daga, mánuði um barnaníðinga og framferði þeirra, vil ég gjarnan koma þessu að hvað varðar Ábyrga ferðamennsku.

 

Ferðaskrifstofur í Danmörku þar á meðal við hjá Ferd.is vinnum að því að skapa ferðalög með ábyrgð. Því höfum við verið ásamt þeim sem við vinnum með erlendis verið í samvinnu með dönsku samtökin “Red Barnet” sem er aðili af samtökunum Save the Children.

 

Fátækt og vonlaus framtíð eins til tveggja milljóna barna í heiminum þvingar þau til að selja líkama sinn. Þetta vandamál hefur vaxið í takt við að hægt er að fá ódýra flugmiða og fleiri geta ferðast til fjarlægra staða.

 

Thailand var einu sinni samnefnari fyrir ferðamannaland þar sem barnavændi var stundað en misnotkun á börnum er líka á mörgum öðrum stöðum, eins og Kambódíu, Sri Lanka, Afríku, Austur Evrópa og Mið Ameríka.

 

Sem ferðamenn með ábyrgð getur þú verið með til að vernda börn

 

1.      Tilkynna lögreglu á staðnum eða fararstjóra / leiðsögumanni ef þú hefur grun um barna misnotkun. Ef það er ekki mögulegt á staðnum hafðu þá samband við lögreglu hér á Íslandi þegar þú kemur til baka.

2.      Tilkynntu það ferðaskrifstofunni ef þú verður vitni að því að fullorðnir taki ókunn börn með sér á hótel herbergi. Ferðaskrifstofan getur þá gripið inní gagnvart hótelinu og tilkynnt það lögreglu á staðnum.

3.      Láttu ferðaskrifstofu þína vita ef þú hefur orðið var við eitthvað sem minnir á barna misnotkun á þeim stað eða stöðum sem þú ferðast á.

4.      Taktu þátt með því að sýna skoðun þína, stattu fram og gefðu til kynna að þú sért á móti mannsali, vændi og misnotkun á börnum.

 

Mundu nú samt að njóta ferðarinnar hvar sem þú ert.

 

Hver er stefnan hér á Íslandi hjá þessum Íslensku ferðaskrifstofum? Hvaða lönd eru talin upp hér að ofan? Hvert fer hver leigu flugvélin eftir aðra? Austur Evrópa? Mið Ameríka? (Kúba)?

 

Við hjá Ferd.is seljum ótrúlega mikið af ferðum til Thailands í því sambandi viljum við benda á að einn staður í Thailandi hefur verið og er mjög um talaður fyrir svo kallaðan kynlífs iðnað, þessi staður heitir Pattaya. Það er einmitt þess vegna sem við og samstarfs aðilar okkar bjóðum ekki ferðir á þann stað. Við getum því miður ekki ráðið yfir eða stjórna þeim sem við sendum meðal annars til Thailands, en við hvetjum alla til að sýna ábyrgð sem ferðamenn á fjarlægum slóðum.

 

Við höfum undrast yfir þeim ferðum sem sumar ferðaskrifstofur hér á Íslandi bjóða uppá til Pattaya, auðvitað geta allir litið í hina áttina og það er það sem fólkið gerir sem kaupir ferðirnar til Pattaya því miður.

 

Hvar er samviska þeirra sem skipuleggja og eru farastjórar í þessum ferðum ár eftir ár og þeirra sem kaupa þessar ferðir ár eftir ár?

 

Stuðlum að ábyrgð í ferðamensku með FERD.IS

 

Hægt að nálgast lesefni á Dönsku frá Red Barnet hér en Red Barnet er sömu samtök og Barnaheill á Íslandi.

Afríka
Asía
Ástralía
Bandaríkin
Evrópa
Kanada
Kyrrahafið
Nýja Sjáland
Formúla
Golf
Siglingar
Bóka flug
Bóka bíl
Bóka hótel
Bóka sumarhús
Vantar þig aðstoð?
Sími: 491 2345
Sími: 846 2510
 
sendu okkur póst ýtið hér
 
Einnig er hægt að hafa samband á Skype
Skype Me™!
 
Ferð.is ehf
Kt.: 551105-0590
Burknavöllum1C-208
221 Hafnarfjörður
Forsíða Bóka Bæklingar Góð ráð Tilboð Tryggingar Um okkur

Ýtið á myndina og sækið upplýsingabækling um hvað hafa ber í huga þegar maður ferðast til Thailands.